stutur.bloggar.is
Datt ekki í Ljóta pollinn.... FerðasagaHugrún Lilja Hilmarsdóttir
Við Dagný gerðum okkur lítið fyrir og fórum í ferðalag á föstudaginnVið Lögðum af stað uppúr hádegi á þjóðveg Reykjavíkur nr 1 (Þjóðveg Íslands en Dagný var alltaf að mismæla sig á leiðinni) Hitastigið var um 16 gráður en við rákum hendina útum gluggan bara til að vera vissr og vorum sannfærðar um að það væri sko engin 16 stig..
Ferðinni var heitið á Ísbjarnaslóðir norður í skagafjörð og gékk hún nokkuð vel fyrir utan örugglega hálftíma stopp í Borganesi þar sem kassarnir í Apótekinu neituðu að taka við kortinu mínu....
Við sáumm reyndar enga alvöru ísbirni á leiðinni en alveg helling af svona plat björnum (Kindum)
og vorum við komnar að Veðramóti um kl 16 ca. Við skelltum okkur með í Sónarskoðun hjá Gára frá Auðsholthjáleigu og stóðum okkur með prýði við að standa fyrir og svona.
Þar næst skelltum við okkur á rúntin á Sauðárkrók með honum Munda til að sýna Dagný hversu mikill eðal bær þetta væri, fórum að borða í Ólafshúsi og svona og kíktum útá Reykjaströnd til að taka myndir af eyjum Drangey og Málmey og Þórðarhöfða, Svo var komið að hápunkti kvöldsins að tjalda Svaka ofsa Tjaldlinu hennar Dagnýjar (en það þarf víst gráðu í geimvísindum til þess) þegar við höfðum komist að því að eingungis 10 tjaldhælar voru með í för var ákveðið að setjast að í fellihýsi annarar húsfreyjunar á bænum, (Ástu)
Dagur 2
Morgunin eftir var haldið á Dalvík á Fiskidaginn mikla og lögðum við á stað í rjómablíðu frá Veðramóti léttklæddar sökum veðurs og vorum vissar um að þannig væri það allstaðar en við frusum næstum úr kulda á Dalvík Dagný var komin í flíspeysu og ég með trefill en ferlega gaman samt fullt af góðum mat og helling af fólki. 30.000 manns eða svo og varð mér á að þurfa komast á WC og það eina sem var í boði var kamar (án efa erfiðasata móment ferðarinnar sökum viðbjóðurs....oj)
En annars mjög gaman og mikið af rosalega góðu fiskmeti ...namm namm
svo var komið að miskilningi dagsins við ákváðum stelpurnar að fara sökum kulda og létum Munda vita af því han sagði okkur bara að fara ekkert mál ... jú við brunum af stað til Skagafjarðar sem er um eins og hálfstíma ferð þegar við erum konar að Skarði sem er næsti bær frá Veðramóti hringir Mundi og spyr hvað við séum ... við segum honum það ... nei á misskildin hann okkur hann hélt bara að við ætluðum að fara útí bíl ekki heim , þannig að við skildum hann eftir en hann gat reddað sér heim sem betur fer þótt við hefðum alveg verið til í að skutlast eftir honum....
Dagur 3
Sunnudagurinn var tekinn með rólegheitum fengum rosagott læri í hádegismat hjá Mæju á Veðramóti (Hin húsfreyjann) Við ætluðum í Rafting en ákváðum að sleppa því sökum kulda...
í staðinn var bara farið í góðan Reiðtúr Dagný fékk gæðingin Fák og ég fór á minn Bjartskegg sem ég fer alltaf á þegar ég fer í göngur á haustin 19 vetra klár með túrbínu enda mátti ég hafa mig alla við að halda í hann og Dagný lá í kasti við að sjá vinkonu sína skondrast um á hesti sem hún réð ekkert við frábær túr sem endaði á harðaspretti heim ekkert smá gaman....Og Dagný á eftir að lifa á þessu lengi enda ekki búin aðkomast á hestbak í 5 ár...
Við lögðum af stað um kl hálf 6 heim á leið og vorum svo heppnar að fá með okkur ferðafélaga hana Dísu sem var í heimsókn á Veðramóti Ferðinn gékk vel og var þetta alveg brill helgi í alla staði og erum við vinkonurnar búnar að ákveða að þetta verði árviss atburður hjá okkur að við förum eina helgi eitthvert útá land yfir sumarið bara tvær;)
Meira næst....
þú veist að það er 2008....Hugrún Lilja Hilmarsdóttir
Þú veist að það er árið 2008 ef.....1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því
þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .
4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara
á takkann á sjónvarpinu.
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.
10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.
12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu...
Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu. 
Bumban og Molinn...Hugrún Lilja Hilmarsdóttir
Ekki mikið merkilegt búið að vera gerast hjá mér ... og þó.
Er búin að vera svoldið með henni óléttu Dóru minni fór um daginn og tók Bumbumyndir og við eyddum tveim dögum saman í rólegt heitum.... Litla krílið fer alveg að koma og er settur dagur 28.08.08...
Falleg Kúla.
Svo komu mamma og pabbi og voru í viku með pásum ... þau fóru að ganga uppí þórsmörk lika...
og á meðan var ég uppí sveit að flytja rúllur EIN á Traktor ... ferlega kúla með vagn og allt... algjör sveita tútta... Steinar var með mér á öðrum traktor og með vagn líka
þetta hefur verið ferlega fyndið .. ég pínulítil sá varla yfir stýrið g náði varla niður á olíugjöfina og bremsuna og sollis á huges John Deere traktor..
Og síðast en ekki síst er ég búin að ættleiða einn lítinn Mola...
Ekkert nema eyrun
Ég fékk Mola hjá góðri konu í Hafnarfirði og er hann kolsvartur blendingur... 3/4 Norskur skóagarköttur og 1/4 Íslenskur eðalköttur enda er hann ekkert smá loðin og sætur ....
Sefur mikið en hress þess á milli...
ZZZzZZZZzzzz.....
Fyndin tilviljun...
Krissa vinkona kom í gær að kíkja á litla stýrið og send hún mér SMS 30 mín síðar um að hún væri sko alveg til í að fá einn svona lítin prakkara.... svo fékk ég frá henni símtal svona klukkutíma síðar þá var læðan henar búin að gjóta þremur kettlingum sem hún bjóst ekki við að fá fyrr en eftir svona viku... talandi um fynda tilviljun...
Miera seinna;)
Landsmót að baki og lífið heldur áfram....Hugrún Lilja Hilmarsdóttir
Landsmót a baki og daglegt líf tekur við.Landsmótið var hreint frábært ég reyndar fékk flensupest og missti af helmingnum af því en náði því sem ég vildi ná...
Glanni minn komst ekki áfram en Ísleifur sýndi hann af mikilli snilld og allir voru sáttir við það , Ísleifur gerði sér svo lítið fyrir og vann B-Flokkinn á honum Röðli sínum.

Ísleifur og Röðull fagna sigri
Illingur minn var annar í A flokknum eftir harða baráttu ,mikil vonbrigði og einkennilega einkunnagjöf til sumra aðila en ég ætla ekki fara útí það hér.
Þula mín er farin í girðinguna hjá Illingi og vonandi fæ ég fallegt folald undan þeim næsta sumar.

Illingur frá Tóftum og Daníel Jónsson á fljúgandi skeiði.
Annars var margt annað á landsmótinu ferlega skemmtilegt Ræknuarbú, fyrstuverðlauna afkvæmahópar og svo var gæðingurinn Orri frá Þúfu til sýnis einn daginn í reiðhöllinni ekki amalegt að fá að bera hann augum, reyndar fannst mér hann rosalega lítill en hann er orðinn 22 tveggja vetra og átti hann 28 afkvæmi í sýningum og keppni á mótinu, Þorri frá Þúfu fyrsta afkvæmi hans var líka til sýnis og er hann 18 vetra og rosalega fallegur.

Orri frá þúfu hinn eini sanni.
En nóg um Landsmótið ...
margt skemmtilegt hefur gerst í vikunni og er ég bara búin að vera uppá Tóftum í sveitinni alla daga, er orðinn kúasmali í hjá verkum;)

Moo!!!
Keypti nýja hryssu á þriðjudaginn og ber hún nafnið Stokksey frá Tóftum og er alveg hreint gullfalleg undan Krumma Frá Blesastöðum.

Hérna er hún svartblesótt en kemur til með að verða grá.
Hún er 4 vetra og alveg ótamin þannig að það var brunað með hana á fimmtudaginn í Kálfholt til Ísleifs í tamningu og molinn minn tekinn heim hann Hersir. en hann er búin að vera hjá þeim síðan nokkuð fyrir Landsmót,
Svo var það hápunktur vikunnar þegar ég steig á bak á mínum fyrsta hesti honum Hersi sem ég fékk að gjöf fyrir 7 árum síðan frá henni Gunnu minni heitinni á Sauðárkrók en hann hefur aldrei verið taminn fyrr en nú og þvílík tilfinning að stíga á bak einhverju sem þú ert búin að fylgjast með vaxa og dafna í svona mörg ár reiðtúrinn var stuttur og útum allt en góður og kom hann mér alveg á óvart varðandi allt og mig hlakkar til næstu vikna sem koma til með að fara í tamningu á honum enda komin tími til að ég reyni að temja hest alveg sjálf og er það ekki verra að hann verði fyrir valinu.

Ég og Hersír á góðri stund í vetur.
Ég kem til með að fá góða hjálp frá Steinari mínum en hann vill að ég geri allt sjálf sem er bara mjög gott og verður gaman þegar upp er staðið að hafa að mestu tamið hann alveg ein.
þetta fínn skammtur í máli og myndum í bili.. góðar stundir ;)
Landsmót Hestamanna.Hugrún Lilja Hilmarsdóttir
Jæja þá er komið að því ..... Landsmótið er hafið og mér líður svona svipað og litlum krakka á aðfangadag að bíða eftir jólunum.... svo skemmir ekki að Mundi verður á svæðinu og systir hans Ásta og Siggi maðurinn hennar allt vinir mínir úr Skagafirðinum...ballið byrjar á morgun þriðjudag þá byrjar B - Flokkur gæðinga og þar eru flottir hestar sem mig langar að sjá Hlýr frá Vatnsleysu, Eldjárn frá Tjalhólum , Freyðir frá Hafsteinstöðum og svo uppáhaldið Röðull frá Kálfholti.

Röðull frá Kálfholti
Svo hefst A flokkrinn eldsnemma á Miðvikudag þannig að Stúturinn verður mjög þreyttur a horfa á það er nefnilega að vinna á aðfarnótt miðvikudags og ballið byrjar 8:30
þar eru gæðiingarnir Tindur frá Varmalæk , Straumur frá Leirulæk sem mig langar að sjá og svo gullinn mín Illingur frá Tóftum sem Bjarkar "afi" Steinars á og hún Þula mín ætlar að eignast folald með næsta sumar ef allt gegnur að óskum... og molinn!!!... minn eigin Glanni frá Reykjavík sem ég á sjálf og Meistari Ísleifur Jónasson sýnir.

Illingur frá Tóftum

Minn eiginn Glanni frá Reykjavík og Ísleifur Jónasson
þannig að það er spennandi og skemmtileg vika framndan hjá mér ég er að springa úr spenningi.... og myndavélin ennþá meira ;)
Busl.....Hugrún Lilja Hilmarsdóttir
Við Drífa fórum með hundana hennar að syndaþýðir ekkert að fara með minn hhann er svo vatnshræddur
myndirnar tala sínu máli....;)

Lúkas á stökki að fara ná í frisbee

Á leið í land

Blautir og fínir
Fleiri myndir á flickrinu mínu ;)
það setur enginn Lilla útí Hornið....Hugrún Lilja Hilmarsdóttir
Ég dó næstum úr hlátri......http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&id=6491
Þannig fór um sjóferð þá.....Hugrún Lilja Hilmarsdóttir
Aumingja litla bangsastelpan farinn yfir móðun mikluþetta var víst bangsastelpa enn ekki strákur
fyndið það tala alltaf allir um hann þegar það koma svona kvikyndi á landið en fólki grunar aldrei að þetta sé skvísa...
mikið feginn samt að þeir skutu hana því hún var víst svo illa löskuð og hefði ekki þolað allt ferðabrasið..
Spáið í allt þetta bras fyrir ekki neitt....
Bangsinn heim....Hugrún Lilja Hilmarsdóttir
Wow....ekki væri ég til í að vera fyrir norðan núna
ég er á Selfossi og er mikið hrædd.....
Gott framtak hjá þeim samt að reyna koma bangsa heim og hjá Novatorsmönnum að borga
ég bölsótaðist svoldið yfir björgunninni í dag sennilega vegna hræðslu en sá ljósið seinni partinn og finnst bara fínt að þeir reddi honum heim svo hann þurfi ekki að fara á fingrinum greyið
allavega er ég sátt á meðan hann er í 500 km fjarlægð .....
þetta er orðið svona eins og slagorðið hjá Sophiu Hansen hérna um árið "Börnin Heim"
Æðislegur dagur ...Hugrún Lilja Hilmarsdóttir
Átti hreint frábærann dag í dag
Dóra kom til mín um kl 12 og fórum við í sund sem vara bara kósí
Svo var brunað uppá Hellu og kíkt á Drífu og litlu sætu Krummalínu og hnoðast með hana í 4 tíma eða svo
enda ekki annað hægt þegar svona fallegt barn á í hlut ;)
Reynda sá ég það að móðureðlið er ekki beint komið í mig því hún grét bara þegar ég var eitthvaða að reyna að halda á henni svona fyrst allavega en sofnaði svo litla skinnið... envar alveg slök hjá Dóru enda vissi hún það að það tilvonandi leikfélagin væri þarna undir í kúlunni á Dóru ...;)
hreint frábær dagur
vantaði bara Steinar heima til að toppa þetta allt saman ;)
þarf lítið til að gleðja mig greinilega;)






